Fara í meginmál
Nýlögð hellustétt og frágengin lóð eftir BT Verktaka

Verktakar í yfirborðsfrágangi

Hellulagnir, jarðvinna og snjóbræðsla með vönduðum frágangi

B.T. Verktakar ehf. taka að sér hellulagnir, jarðvegsskipti, snjóbræðslu, hleðslur, vélavinna og annan frágang lóða. Við komum á staðinn, mælum og gerum tilboð.

Sími: 898 4202 · baldur@btverk.is

3ja ára ábyrgð á öllum verkum

Frí skoðun og mæling á staðnum

Frítt tilboð – við svörum innan 24 tíma

Snyrtileg vinnusvæði og vandað efnisval

1.300+

vel heppnuð verkefni

20+

ár í yfirborðsfrágangi

3

ára ábyrgð á öllum verkum

Ferlið

Frá fyrstu skoðun til lokafrágangs

  1. 01

    Þú sendir fyrirspurn

    Hringdu í 898 4202 eða sendu okkur fyrirspurn með upplýsingum um verkið.

  2. 02

    Við skoðum og mælum

    Við komum á staðinn, mælum svæðið og förum yfir möguleika og efnisval með þér.

  3. 03

    Frítt tilboð – við svörum innan 24 tíma

    Þú fær skýrt tilboð með umfangi verksins og því sem er innifalið.

  4. 04

    Verkið unnið og frágengið

    Við vinnum verkið, höldum vinnusvæðinu snyrtilegu og skilum því fullfrágengnu.

Verk

Myndir úr verkum okkar

Myndirnar eru úr raunverulegum verkum sem við höfum unnið fyrir viðskiptavini okkar.

  • Hellulögn við hús
  • Hellulögn á stórt aðkomusvæði
  • Hleðsla og kantfrágangur
  • Hellulögn á stétt
  • Hellulögn og frágangur við innkeyrslu
  • Hellulögn við heimili

Umsagnir

Það sem viðskiptavinir segja

  • Piltarnir frá BTverk lögðu fyrir okkur 40 fermetra stétt sumarið 2024. Allt í sambandi við þá vinnu var til fyrirmyndar. Viðmót, ráðgjöf, tímaáætlun, vandvirkni, umgengni og verkskil - allt upp á tíu.

    Helga og Hilmar, Krummahólum

  • Við viljum þakka fyrir samstarfið frá því í fyrravor þegar við ákváðum að endurnýja lóðina hjá okkur og stéttina framan við húsið okkar hér í Háhæð í Garðabæ. Vinnan við þetta verkefni var mjög fagmannlega unnin, sérstaklega viljum við þakka fyrirkomulag á hleðslu á kanti meðfram göngustíg og hvernig stiklum var raðað meðfram gafli hússins. Einnig lagningu á þökum á lóð og uppsetningu fánastangar á lóðinni. Þessi vinna hefði ekki getað verið betur unnin og að okkar mati er alveg óhætt að gefa BT-verktökum fullt hús stiga fyrir þetta verkefni.

    Kveðja, Þorvaldur og Ólöf

  • Við fengum BTverk til að taka garðinn okkar í gegn síðasta sumar. Þeir mættu þegar á umsömdum tíma, kláruðu verkið samkvæmt áætlun og skiluðu af sér frábæru starfi. Við erum ánægð með þeirra starf og munum leita til þeirra aftur næst.

    Hjón í Kópavogi

Fáðu tilboð í verkið þitt

Segðu okkur frá verkinu og við komum á staðinn, mælum og sendum þér frítt tilboð – við svörum fyrirspurnum innan 24 tíma.