
Um okkur
Um BT Verktaka
B.T. Verktakar ehf. er verktakafyrirtæki sem sérhæfir sig í yfirborðsfrágangi lóða: hellulögnum, jarðvegsskiptum, hleðslum, snjóbræðslu, vélavinnu, túnþökum, skjólgirðingum og trjáfellingum.
Hvernig við vinnum
Við byrjum á fríri skoðun og mælingu á staðnum. Þar förum við yfir aðstæður, efnisval og raunhæfa möguleika. Fyrirspurnum svörum við innan 24 tíma og þú fær frítt tilboð með skýru umfangi verksins.
Vönduð vinnubrögð
Undirbúningur skiptir mestu máli í yfirborðsfrágangi. Við leggjum áherslu á rétt undirlag, þjöppun, halla og vatnslosun svo verkið haldi sér í íslenskum aðstæðum.
Snyrtileg vinnusvæði
Við höldum vinnusvæðinu snyrtilegu á meðan verkið er unnið og skilum því fullfrágengnu. Það skiptir sérstaklega miklu máli í heimreiðum, görðum og við fjölbýli.
Ábyrgð
Öll verk sem við tökum að okkur eru með 3ja ára ábyrgð.
Reynsla og viðskiptavinir
Fyrirtækið hefur um 20 ára skeið skapað sér gott orðspor og hefur unnið rúmlega 1.300 verkefni. Í hópi viðskiptavina eru húsfélög, verktakar, einkaaðilar, ríki og borg. Stofnendur fyrirtækisins eru Baldur Freyr Gústafsson og Þórir Kr. Þórisson, og eigandi fyrirtækisins er viðstaddur allar framkvæmdir á verkstað og hefur yfirumsjón með verkum.
Efnisval og meðmæli
Við notum besta fáanlega hráefni sem tryggir hámarks endingu og gæði. Meðmælendur eru til staðar og einnig bendum við fólki á að tala við birgja eins og BM Vallá og Steypustöðina ehf.
Hugmyndir og hönnun
Ef þú ert ekki búinn að ákveða hvernig lóðin á að vera getum við unnið hugmyndavinnu og útfærslu með þér áður en verkið byrjar.
