
Umsagnir
Umsagnir viðskiptavina
Umsagnir sem viðskiptavinir okkar hafa sent okkur eftir að verkum var lokið.
“Piltarnir frá BTverk lögðu fyrir okkur 40 fermetra stétt sumarið 2024. Allt í sambandi við þá vinnu var til fyrirmyndar. Viðmót, ráðgjöf, tímaáætlun, vandvirkni, umgengni og verkskil - allt upp á tíu.”
Helga og Hilmar, Krummahólum
“Við viljum þakka fyrir samstarfið frá því í fyrravor þegar við ákváðum að endurnýja lóðina hjá okkur og stéttina framan við húsið okkar hér í Háhæð í Garðabæ. Vinnan við þetta verkefni var mjög fagmannlega unnin, sérstaklega viljum við þakka fyrirkomulag á hleðslu á kanti meðfram göngustíg og hvernig stiklum var raðað meðfram gafli hússins. Einnig lagningu á þökum á lóð og uppsetningu fánastangar á lóðinni. Þessi vinna hefði ekki getað verið betur unnin og að okkar mati er alveg óhætt að gefa BT-verktökum fullt hús stiga fyrir þetta verkefni.”
Kveðja, Þorvaldur og Ólöf
“Við fengum BTverk til að taka garðinn okkar í gegn síðasta sumar. Þeir mættu þegar á umsömdum tíma, kláruðu verkið samkvæmt áætlun og skiluðu af sér frábæru starfi. Við erum ánægð með þeirra starf og munum leita til þeirra aftur næst.”
Hjón í Kópavogi
“Allt stóðst, vönduð vinnubrögð, frábært efnisval, stundvísi og áreiðanleiki! Við gætum ekki hafa fengið betri menn í þetta verk. Veröndin orðin svo falleg og mikill yndisreitur!”
Kær kveðja frá Nesbúum
“BT verktakar voru snöggir, gengu vel til verka, vandvirkir, ráðagóðir (varðandi hitalögn og tengingar á henni). Tímaplan stóðst, þægilegir í samskiptum, allir íbúar mjög sáttir.”
Húsfélagið að Sléttahrauni 19-21, Hafnarfirði
“B.T. Verktakar komu og hellulögðu innkeyrsluna okkar, settu upp snjóbræðslu, steinahleðslu og förguðu gömlum trjárunnum. Verkið stóðst allar okkar væntingar, var unnið hratt og vel og allur frágangur til fyrirmyndar. Gætum ekki verið ánægðari!”
Röggi og Klara í Mosó
“Mælum hiklaust með BT verktökum. Öll samskipti traust og þægileg, allar tímasetningar stóðust og mjög röskir og vandvirkir í vinnu.”
Fjölskylda í Vesturbæ Reykjavíkur
“Við getum heilshugar mælt með BT Verk sem endurunnu og stækkuðu bílaplanið hjá okkur og aðkomu svo eftir er tekið í nágrenninu. Allt stóðst eins og stafur á bók, bæði tíma- og fjárhagsáætlun. Greinilega topp fagmenn á ferð með styrka verkstjórn.”
Fjölskylda í Hamrahverfi, Grafarvogi
“Allt stóð eins og stafur á bók og afraksturinn ljómandi góður.”
Ingólfur V. Gíslason
“Strákarnir hjá BTverk hellulögðu hjá mér heimreið og svæði með fram húsinu. Þeir unnu verkið fljótt og vel. Öllum fyrirspurnum var svarað undir eins og allt sem um var samið stóðst.”
Halldór Guðmundsson, Víðiberg, Hafnarfirði
“BTverk mættu þann dag sem samið hafði verið um og kláruðu á fyrirfram gefnum tíma. Við hjónin erum mjög sátt við frammistöðu þeirra.”
Íbúar í Kórahverfi, Kópavogi
“Strákarnir í BT-Verk stóðu sig í öllu vel... Ástundun var til sóma og skildu eftir sig fallegt verk.”
Íbúi í Vesturbæ, Kópavogi
“Var með ófrágengna lóð í Mosfellsbæ og fékk BTverk til að ganga í málið. Þeir voru ekki lengi að gera hana virkilega fallega og ég treysti mér fyllilega til að mæla með þeim. Kom okkur mest á óvart hvað þetta gekk hratt fyrir sig.”
Fjölskylda í Höfðahverfi, Mosfellsbær
“BT Verk lögðu fyrir mig stétt í fyrra sumar, unnu það fljótt og vel. Það sem mér fannst æðislegt var hversu snöggir þeir voru en skiluðu samt 100% verki.”
Björg Magnúsdóttir, Arnartanga 54, Mosfellsbær
“Stóðst allt hjá þessum meisturum hvað varðar tímasetningar og gæði. Við hjónin getum ekki verið ánægðari með BT verk. Munum alltaf gefa þeim okkar bestu meðmæli.”
Ánægðir viðskiptavinir (hjón í Fossvogi)
“Faglegt tilboð sem stóðst 100%. Vönduð vinna og snyrtilegir. Þægilegir í samskiptum og unnu verkið fljótt og örugglega samkvæmt tímaáætlun.”
Gísli og Eva
